Draumurinn
Lífið lofar eitt
leitin stoðar lítt
Verst að vita ekki neitt
vonin er eitthvað nýtt.
Hver var ástin þá?
Verskuldaði ei það
að heyra og sjá
hvað lygin kvað.
Er draumur deyr
dofnar allt!
Hvorki fiskur né fé
fýsir að vita
Hver sú kona sé
sem fékk mig að líta.
Hver sem ég er
ef ég fæ ekki að sjá
hvert hún fer
hana mun ég aldrei fá.
Ég horfi hvert sem er
og hennar ásjónu sé.
Brátt burt ég fer
brenn allt mitt fé.
Er draumur deyr
dofnar allt!
leitin stoðar lítt
Verst að vita ekki neitt
vonin er eitthvað nýtt.
Hver var ástin þá?
Verskuldaði ei það
að heyra og sjá
hvað lygin kvað.
Er draumur deyr
dofnar allt!
Hvorki fiskur né fé
fýsir að vita
Hver sú kona sé
sem fékk mig að líta.
Hver sem ég er
ef ég fæ ekki að sjá
hvert hún fer
hana mun ég aldrei fá.
Ég horfi hvert sem er
og hennar ásjónu sé.
Brátt burt ég fer
brenn allt mitt fé.
Er draumur deyr
dofnar allt!