Kryddaður hversdagsleikinn
Þrúgandi veraldleikinn stígandi,
blandaður votri ást raunveruleikans.
Holaður að innan með plastrenningum,
útgrenjaður unaðsleikinn.

Blómstrandi ástin hallandi,
blönduð mannillsku góðmennskunnar.
Holuð að innan en fljótandi,
fullkominn guðdómleikinn.

Flögrandi mannvera svífandi,
blönduð feigðarlyfi almúgans.
Holuð að innan af geðveiki,
Kryddaður hversdagsleikinn.
 
Gunnur Ósk án efa
1978 - ...


Ljóð eftir Gunni Ósk án efa

Tilhlökkun
Án titils
Kryddaður hversdagsleikinn
Kannt ekki að dansa