Undirrót reiði
Hvers konar maður það er
sem hér hjá fer.
Sá maður þjónaði mér,
þræll til eilífðar, hver og einn sér.
Hvurt skyldi hann fara nú,
hvert liggur ferð sú
sem þessi maður tekur sér
með skömm og smán frá mér?
Hvur fjandinn gengur að honum
sem lék sér að mínum konum?
Búinn að safna að sér heilum flokk
hann sem drap minn kokk.
Hví líst mér ei á svip þann
sem hann gefa mér kann?
Kannski því hans greppitrýni ég hata
og hann myndi ég helst vilja gata.
Hve angistin hrópar á mátt
og hláturinn hljómar hátt.
En hláturinn þekki ég ekki
og sjónin hverfur í mekki.
Hversu lengi hrópar angistin
í þetta sinn
því hláturinn er ekki minn.
sem hér hjá fer.
Sá maður þjónaði mér,
þræll til eilífðar, hver og einn sér.
Hvurt skyldi hann fara nú,
hvert liggur ferð sú
sem þessi maður tekur sér
með skömm og smán frá mér?
Hvur fjandinn gengur að honum
sem lék sér að mínum konum?
Búinn að safna að sér heilum flokk
hann sem drap minn kokk.
Hví líst mér ei á svip þann
sem hann gefa mér kann?
Kannski því hans greppitrýni ég hata
og hann myndi ég helst vilja gata.
Hve angistin hrópar á mátt
og hláturinn hljómar hátt.
En hláturinn þekki ég ekki
og sjónin hverfur í mekki.
Hversu lengi hrópar angistin
í þetta sinn
því hláturinn er ekki minn.