Mistök
Hvað hef ég gert til að verðskulda þetta?
Get ekki stutt mig við þig og mér finnst ég vera að detta
Mistök í lífi mínu svo hundruðum skiptir
Ég elska þig svo heitt en þú ást minni sviptir
Er í lagi að leggja þetta á aðeins einn mann
Að elska þig heitt er það eina sem ég kann
Áður var ég einn, áður en þig ég fann.
Sorgir buga og sorgir þjá
Hvað þarf til að fá þig til að sjá
Ást mína í þinn garð
Garður, sem fullur er af þrá.