Þolinmæði
Er einhver þolinmæði eftir hjá mér?
ég er ekki viss
ég er að gefast upp og veit ekki hvað ég get gert
það er ekkert lengur athyglisvert
ekkert sem vekur áhuga minn á
það eina sem heldur mér á lífi er gömul þrá
að rætast muni úr mér, en sá draumur er mig að þjá
því ég veit, að þeim áfanga mun ég aldrei ná
ég var fæddur sem mistök
ekki neita því ef þú hefur engin rök
en það er samt engra sök
ég hef alltaf verið svona
sitjandi í myrkri og vona
að skýin muni hverfa frá mér og birta skín inn
ég hef allt reynt, allt sem ég get í hvert sinn
ég fæ mitt tækifæri til að sanna hvað í mér væri
en ég fell á öllu sem mér er boðið