Móðir
Þú! Sem átt að heita móðir
hefur eyðilagt mig,
tekið persónuleika minn
og hent honum á haugana.
Gleymt mér og
hver ég var.

Ætíð er ég ein og nakin
því þú hefur brotið mig.
Þú! Sem átt að heita móðir.

Það er ekkert
sem ég get gert
svo ég horfi á þig brjóta mig,
horfi á þig skemma mig
og þú, sem átt að heita móðir
horfir á mig
hata þig.

Samt, ertu mér allt.  
Jamelia
1988 - ...


Ljóð eftir Jameliu

Sjáðu
Írak
Móðir