Handan fagurra fjalla
silfurmáluð mjöllin myndar skafla
tunglið varpar ljósi sínu bjartar
stjörnur skríða hæglátar um himin
norðurljósin dansa kát um skýin
myrkrið magnar fegurð næturinnar
ég geng hér glaður undir fjallasýn...
...
faðir stendur leiður yfir foldu
frumburðurinn grafinn djúpt í moldu
stríðið blóðgar líka dáðadrengi...
mæður gráta sáran yfir sonum
hverfur hinsta ögn úr þeirra vonum
stríðið hefur staðið alltof lengi...
...
silfurmáluð mjöllin myndar skafla
tunglið varpar ljósi sínu bjartar
stjörnur skríða hæglátar um himin
norðurljósin dansa kát um skýin
vindur hlýr um kinnar mínar gnæðir
meðan handan fjalla blóðið flæðir...
hjarta mitt í sólargeislum kætist
meðan handan fjalla martröð rætist...
sofna ég við tungsljós hlýr og glaður
meðan handan fjalla deyr einn maður...
...
handan fjalla aftur deyr einn maður...
tunglið varpar ljósi sínu bjartar
stjörnur skríða hæglátar um himin
norðurljósin dansa kát um skýin
myrkrið magnar fegurð næturinnar
ég geng hér glaður undir fjallasýn...
...
faðir stendur leiður yfir foldu
frumburðurinn grafinn djúpt í moldu
stríðið blóðgar líka dáðadrengi...
mæður gráta sáran yfir sonum
hverfur hinsta ögn úr þeirra vonum
stríðið hefur staðið alltof lengi...
...
silfurmáluð mjöllin myndar skafla
tunglið varpar ljósi sínu bjartar
stjörnur skríða hæglátar um himin
norðurljósin dansa kát um skýin
vindur hlýr um kinnar mínar gnæðir
meðan handan fjalla blóðið flæðir...
hjarta mitt í sólargeislum kætist
meðan handan fjalla martröð rætist...
sofna ég við tungsljós hlýr og glaður
meðan handan fjalla deyr einn maður...
...
handan fjalla aftur deyr einn maður...
Þegar ég er gangandi uppi á fögrum fjöllum, í töfraveröld undir tunglskinsljósi, reikar hugur minn stundum til stríðshrjáðra landa. Mikill munur á frelsinu hérna og blóðbaðinu í Palestínu.