Í rjóðrinu
sittu nærri eldinum og hlýjaðu þér strákur
er hitinn ekki kósí og yndislega skær?
þú veist það ekki núna – en nærri þér er snákur
með illsku í huga og kemur nær og nær...
starðu á eldinn og láttu værðina á þig falla
er þreytan ekki þægileg og dagdraumar góðir?
hinum megin við glúfrið raddir til þín kalla
hægra megin við þig nálgast skógarbirnir óðir...
hjúfraðu þér við steininn og hvíldu lúin beinin
luktu þínum augum aftur og láttu drauma dafna
hættu að hugsa um sorgir og eldgömlu meinin
þú veist það ekki nú – en í svefni þú munt kafna...
...
gleymdu öllu illu sem þig hefur sært
hugsaðu frekar um það sem er þér kært
horfðu fram veginn - hann liggur nú beinn
hætturnar elta þig – og í miðjunni steinn...
hlauptu áfram strákur og hlauptu hratt
annars hætturnar ná þér og fella þig flatt
hlauptu hratt á þínum blóðugu leggjum
en bráðum lendirðu á flötum veggjum...
...
ef hætturnir þú flýrð – á aumum leggjum
lendir þú bráðum á hörðum veggjum...