Andlitin
Á hverjum degi,
hverju kvöldi,
sjáum við andlit,
okkur kunnug eður ei.
Þau fá mig til að spá…
er líf þessarar manneskju betra?
Hvað var hún að hugsa…
meðan þetta augnsamband varði?
Fastur í mínu eigin lífi
ég enn er.
Farinn að slugsa
og helgidagarnir myndast,
svo að veggnum sný ég aftur.
Ekki líður á löngu
þar til forvitninnar kraftur
snýr mér við…
ég finn ekki frið
því um líf mitt finnst mér fátt,
og í annarra leita ég að sátt.
Tíminn líður
og hugsanaháttur breytist…
mótast og þróast
og nú andinn hefur róast.
Héðan í frá,
lifir aðeins von
og ósk um hamingju aðilans
sem framhjá mér fer,
eins og ríkir nú hjá mér.
Á hverjum degi,
hverju kvöldi.
hverju kvöldi,
sjáum við andlit,
okkur kunnug eður ei.
Þau fá mig til að spá…
er líf þessarar manneskju betra?
Hvað var hún að hugsa…
meðan þetta augnsamband varði?
Fastur í mínu eigin lífi
ég enn er.
Farinn að slugsa
og helgidagarnir myndast,
svo að veggnum sný ég aftur.
Ekki líður á löngu
þar til forvitninnar kraftur
snýr mér við…
ég finn ekki frið
því um líf mitt finnst mér fátt,
og í annarra leita ég að sátt.
Tíminn líður
og hugsanaháttur breytist…
mótast og þróast
og nú andinn hefur róast.
Héðan í frá,
lifir aðeins von
og ósk um hamingju aðilans
sem framhjá mér fer,
eins og ríkir nú hjá mér.
Á hverjum degi,
hverju kvöldi.
Það er nú það, lítið um þetta að segja...munið þið sem vitið hver ég er að allt sem ég skrifa endurspeglast ekki alltaf á sjálfum mér. :)