Í hringleikahúsinu
Á naglaspýtum héngu trúboðar í stellingum fíla
stuttu hjá lágu snákar í langri röð halastjarna
eitrið af tungunum spýttist hægt af stað

ég gekk framhjá
snerti enni snákanna
sneiddi skonsur

í dökkdimmum helli næturinnar
hringsnerist um kófsveitta fíla
sem höfðu verið að iðka sund með Óla bassa
og farið svo að versla á eftir
án undantekninga keypti hver fíll sér
lambhúshettu, kappakstursbíl, derhúfu og sleikibrjóstsykur

ég gekk framhjá
batt höfuðfat á fílana
bað draumana um vernd

á leikvanginum borðuðu ljónin mig,
brytjuðu mig í sundur,
bognuðu sverð
ég ligg nú á gólfi ljónabúrsins
óviss um að ég komist í sturtu aftur
að ég hitti þig  
Gísli Þór Ólafsson
1979 - ...


Ljóð eftir Gísla Þór Ólafsson

Lúna mánagyðja
Bernskuminnið
Ást á suðurpólnum
Síðdegisstemma
Vængbrot engla
Vængjablak
Að mæta tungli á tunglslausri kvöldgöngu
Sálarbrot
Fuðruð ást
Fiðrildi, kanínur og rósrauð sulta
Hjólandi íkorni með næturlukt eða moldarberjasultu í framloppunum
Eins og hafið
Japönsk aftaka
Að yrkja ljóð
Eftirköst
Tenging
Væntingur
Tiltekt
Hverfulleiki
Piparkökuást
Í hringleikahúsinu
Ballaða á orgel í d-moll
Dauði ljóðsins
Ást er...
Þú gafst mér laufabrauð
Samlagning
Tilviljun?
Víðáttur
Um fegurð
Dans
Í fenjasvæðunum
Tafl
Blindni
Lofthræðsla
Harmonikkublús (með osti)
Brotin gleraugu
Vísindi
- - -
Við Sólfarið
----
Þegar kynntumst
Alveg óþolandi á msn
Samræður
Hanskahólfin
------