Við Sólfarið
Borðuðum saman við Sólfarið
inní bílnum þínum
það var rigning og rökkvað kvöld

þetta var bráðsniðugt og mjög órómantískt
en samt eitthvað svo rómantískt

ég var máttlaus
af barnslegri gleði
þér fannst ekkert fyndið

þú keyrðir mig svo heim
varst alltaf að tala um
að þyrftir að pissa

veit ekki ennþá hvort ég
hefði átt að bjóða þér inn til mín
til að pissa
 
Gísli Þór Ólafsson
1979 - ...
-úr Ég bið að heilsa þér (2008)


Ljóð eftir Gísla Þór Ólafsson

Lúna mánagyðja
Bernskuminnið
Ást á suðurpólnum
Síðdegisstemma
Vængbrot engla
Vængjablak
Að mæta tungli á tunglslausri kvöldgöngu
Sálarbrot
Fuðruð ást
Fiðrildi, kanínur og rósrauð sulta
Hjólandi íkorni með næturlukt eða moldarberjasultu í framloppunum
Eins og hafið
Japönsk aftaka
Að yrkja ljóð
Eftirköst
Tenging
Væntingur
Tiltekt
Hverfulleiki
Piparkökuást
Í hringleikahúsinu
Ballaða á orgel í d-moll
Dauði ljóðsins
Ást er...
Þú gafst mér laufabrauð
Samlagning
Tilviljun?
Víðáttur
Um fegurð
Dans
Í fenjasvæðunum
Tafl
Blindni
Lofthræðsla
Harmonikkublús (með osti)
Brotin gleraugu
Vísindi
- - -
Við Sólfarið
----
Þegar kynntumst
Alveg óþolandi á msn
Samræður
Hanskahólfin
------