Lofthræðsla
Með þér get ég verið
vitleysingur
fáviti
ástarfífl

með þér rennur áin uppí móti

með þér má ég vera skrýtinn

með þér er ég tígrisdýr
með þér er ég fugl

(með þér er ég tígrisdýr
með þér er ég fugl)

og þú sagðir:
komdu að fljúga

og ég sagði:
nei, ég er svo lofthræddur

og þú sagðir:
komdu í fjallaklifur, fallhlífarstökk, mánadans

og ég sagði:
nei, ég er svo lofthræddur og ég get bara skifað í tölvuna

og þú sagðir:
komdu að fljúga

og ég sagði:
nei, ég er svo lofthræddur

og þú sagðir:
komdu í fjallaklifur, fallhlífarstökk, hellaskoðanir

og ég sagði:
nei, ég er svo lofthræddur þótt ég geti gengið yfir steyptar brýr
og farið í bakaríið

og þú sagðir:
komdu að fljúga


ég missti þig af því að ég var svo lofthræddur
 
Gísli Þór Ólafsson
1979 - ...


Ljóð eftir Gísla Þór Ólafsson

Lúna mánagyðja
Bernskuminnið
Ást á suðurpólnum
Síðdegisstemma
Vængbrot engla
Vængjablak
Að mæta tungli á tunglslausri kvöldgöngu
Sálarbrot
Fuðruð ást
Fiðrildi, kanínur og rósrauð sulta
Hjólandi íkorni með næturlukt eða moldarberjasultu í framloppunum
Eins og hafið
Japönsk aftaka
Að yrkja ljóð
Eftirköst
Tenging
Væntingur
Tiltekt
Hverfulleiki
Piparkökuást
Í hringleikahúsinu
Ballaða á orgel í d-moll
Dauði ljóðsins
Ást er...
Þú gafst mér laufabrauð
Samlagning
Tilviljun?
Víðáttur
Um fegurð
Dans
Í fenjasvæðunum
Tafl
Blindni
Lofthræðsla
Harmonikkublús (með osti)
Brotin gleraugu
Vísindi
- - -
Við Sólfarið
----
Þegar kynntumst
Alveg óþolandi á msn
Samræður
Hanskahólfin
------