Sigga
Ég veit að þú hefur beðið eftir því
finnst það rómantískt
sætt
en ég tileinka aldrei ljóð

Ég er prinsippmaður
þú verður að fyrirgefa
...gerðu það?
því að ég tileinka aldrei ljóð

Þó að ég sakni þín þegar þú sofnar
í sama rúmi og ég
fyrirgefðu
ég tileinka bara aldrei ljóð

Ég skal gefa þér allt, ást, umhyggju
fullnægingar, tíma
...rúblur og skildinga
en Sigga, ég tileinka aldrei ljóð  
árni
1982 - ...


Ljóð eftir árna

Án titils 1
Óheppileg Kompósísjón (nr. 3)
Premier Amour
án titils
Random aesthetics
Sigga
Svo bregðast bambusprik sem önnur prik