Óheppileg Kompósísjón (nr. 3)
ÉG sé það
ég vil það
ég finn af því lyktina

ráðgjafarnir tala hver ofan í annan

taktu það
bíttu í það
láttu það vera
láttu tunguna leika um það
hvað græðirðu á því?
komdu þér í burtu
hættu að horfa
þefaðu af því
af hverju þarftu það?

raust þeirra hækkar
ég næ ekki að svara
ekki að rökstyðja

fell í dá
tek ákvörðun, framkvæmi
og fell


þriggja flokka kerfið
er ekki fyrir hvern sem er  
árni
1982 - ...


Ljóð eftir árna

Án titils 1
Óheppileg Kompósísjón (nr. 3)
Premier Amour
án titils
Random aesthetics
Sigga
Svo bregðast bambusprik sem önnur prik