Persónuvottorð
Ert þú svona persóna
sem vill verða geimfari?
Eða viltu kannski verða ræstitæknir?
Kannski köfunarsérfræðingur?

Borðar þú brauð með sultu,
eða bara með osti og smjöri?
Tekur þú upp rusl sem þú sérð á götunni,
eða ert þú sá sem hendir því á hana?

Ertu rauðhærð eða brúnhærð,
feimin eða kjarkmikil?
Íþróttamanneskja?
Eða anti-sportisti?

Mjúk persóna eða hörð?
Skapmikil eða róleg?
Kannski ertu smámunasöm,
eða tekur ekki eftir neinu?

En mér er svo sem alveg nákvæmlega sama.
Ég elska þig.  
Fljúgandi þorskur
1988 - ...


Ljóð eftir Fljúgandi þorsk

Ástin
Ég er ekki fólk
Blaðaútburður
Elskhugi
Samþykkt ljóð?
Jarðsprengusvæði
Boring
Persónuvottorð
Á milli
Fiðrildið...
Það stefnir allt í nauðlendingu
Augnakonfekt
Mjólkuróþol
Kekklaus
Ritstífla