Ómerkt gröf
ég var vinurinn þinn
og ég vakti með þér
þínar sorgir og mínar
voru eitt
en þú kvaddir of fljótt
lagðir brennheita kinn
að köldum vanga
og faðmaðir mig
og þá fann ég það fyrst
að ég elskaði þig,
er hin nákalda nótt
nam þig brott,
svo mín nýfædda ást varð að deyja
á laun
svo ég deyddi hana og lagði í gröf
í urðinni,- í ómerkta gröf.
og ég vakti með þér
þínar sorgir og mínar
voru eitt
en þú kvaddir of fljótt
lagðir brennheita kinn
að köldum vanga
og faðmaðir mig
og þá fann ég það fyrst
að ég elskaði þig,
er hin nákalda nótt
nam þig brott,
svo mín nýfædda ást varð að deyja
á laun
svo ég deyddi hana og lagði í gröf
í urðinni,- í ómerkta gröf.