Nonni
Brástjörnur blíðar man ég
blika mót sjónum mínum.
Bros geisla og glitrandi perlur
gæfuna í örmum þínum.
Nálægð sem neistaði elding
er nam ég frá verund þinni.
Nafn eins og ómfagur söngur
yljar nú sálu minni.
blika mót sjónum mínum.
Bros geisla og glitrandi perlur
gæfuna í örmum þínum.
Nálægð sem neistaði elding
er nam ég frá verund þinni.
Nafn eins og ómfagur söngur
yljar nú sálu minni.