Styrkur
Sit með sjálfa mig í fanginu.
Strýk varlega yfir höfuðið
og augun.
Þerri tárin
sem renna á milli fingranna
með tungunni.

Hvísla lágt og sefandi:
Ég skal alltaf gæta þín,
alltaf vera hjá þér,
alltaf hugga þig.

Finn hvað það er gott
að vera svona sterk
þegar ég er sem aumust.
 
Anna Þóra
1963 - ...


Ljóð eftir Önnu Þóru

brot
Hækur
Kyrrð
Hækur 2
Fall
Orðið
stunga
kabárutfa
Tilviljun eða grís?
Suð
húsblús
Um fjöll
Saga úr umferðinni
frelsi
Lofbogi
Lygavefur
Skýrás
Styrkur
orsök
Stjörnuskrjáf
Tiltekt
Skoskur leigumorðingi?
Blik
Án ábyrgðar
Sannalegar sannar lygar
Umsátur um ást
Múrverk
Endurminning kennarans
Klifur
minningarnar einar
bilin
X
Leikur
Jól - enn á ný
Ok
Bítl
Kvín-bí
Fífillinn
Kreppa
Himnasæla
Til mömmu