Í fjötrum
Í haustgulu kvöldskini
gengu elskendurnir
að fossinum.
'Komdu', sagð´ann
og stökk út á stein
í miðri ólgandi ánni.
'Komdu', sagð´ann
aftur - biðjandi
og rétti út höndina.
Hann stendur enn
- einn á hálum steini.
Svellbólstruð áin.
Fossinn í fjötrum
- ísköldum fjötrum.
gengu elskendurnir
að fossinum.
'Komdu', sagð´ann
og stökk út á stein
í miðri ólgandi ánni.
'Komdu', sagð´ann
aftur - biðjandi
og rétti út höndina.
Hann stendur enn
- einn á hálum steini.
Svellbólstruð áin.
Fossinn í fjötrum
- ísköldum fjötrum.