BLÓMIN Í GARÐINUM
Blóm vaxa nálægt hjarta mínu.
Mig langar
að skipta um jarðveg áður en þau visna

en ég get það ekki.

Þau teygðu sig upp úr
ástinni,
í skjóli við umhyggjuna
og brostu með blöðum sínum
og krónu eins og lifandi börn.

Í hvert sinn sem ég
gekk um garðinn,
brosti hjarta mitt.

Dagblöðin fuku hjá
í árvindinum,
Forsíðurnar breyttust.
Allt er svo óvart.

Hjarta mitt er hætt að brosa.
Ég stend kyrr í garðinum.

Blómin sem uxu
svo nálægt hjarta mínu,
drúpa höfði.

Þau eru enn í skjóli
við umhyggjuna.
Teygja sig upp úr hatrinu
en brosa ekki með blöðum sínum
og krónu eins og lifandi börn.

Blóm vaxa nálægt hjarta mínu.
Mig langar að skipta
um jarðveg áður en þau visna

en ég kann það ekki.
 
Ásgeir Beinteinsson
1953 - ...


Ljóð eftir Ásgeir Beinteinsson

NORÐURLJÓSIN
ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGURINN 17. JÚNÍ 2002
LÍFIÐ
FYRIR INGU
TILGANGURINN
GRASAGARÐURINN Í KAUPMANNAHÖFN
ÞROSKINN
MAÐURINN Á HJÓLINU
NÚTÍMINN
TIL KONU
Unglingurinn
UPPALANDINN
RITAÐAR HUGSANIR
GUÐ ER TIL
FIMMGANGUR
SPURNINGAR
STYTTAN
ÞUNGLYNDI
GEGNSÝNI
LÍFIÐ, TÍMINN OG ALDURINN
PÓLITÍKUSINN
PRÓFIÐ
TÍMINN VIÐ UPPELDISSTÖRF
BLÓMIN Í GARÐINUM
DÆMALAUS
ÞAR SEM VEGUR FINNUR VOG
VORIÐ Í REYKJAVÍK
PASSA AÐ LJÓSMYNDIR
68
VIÐ
STJÓRNMÁLAMENN
LAUGAÐUR
ÓHEPPNA BARNIÐ
MANNLEGT EÐLI
JÓLALJÓS
Jólin 2004
JÓLIN 2005
LJÓÐRÆNAN Í MÉR
MAÐURINN
LANDSKEPPNIN
MERKIN MERKILEGU
HAMINGJAN
SKÓLASTJÓRINN
LÁTA AÐRA GUÐI Í FRIÐI
SUMARBLÓÐ