STJÓRNMÁLAMENN
Þeir bjóða okkur yfirborð blessaðir.
Yfirborð á nautnunum.
“Ljónið gengur hægt að þrælnum.”
Hróp bylgjast um bekkina.

Þeir bjóða okkur pakkningar blessaðir.
Pakkningar á nautnirnar.
“Ljónið öskrar og staldrar.”
Suss bylgjast um bekkina.

Þeir bjóða okkur skurnir blessaðir.
Skurnir um nautnirnar.
“Ljónið stekkur og slæmir í þrælinn.”
Óóó bylgjast um bekkina.

Þeir bjóða okkur hylki blessaðir.
Hylki fyrir nautnirnar.
“Ljónið rífur þrælinn á hol.”
Öööö bylgjast um bekkina.

Hvað ef þeir vissu af innihaldi blessaðir?
Innihaldi í stað nautnanna.
“Ljónið hefur strjúpa kristna þrælsins í gini sínu.”
Hvað bylgjast um bekkina?
 
Ásgeir Beinteinsson
1953 - ...


Ljóð eftir Ásgeir Beinteinsson

NORÐURLJÓSIN
ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGURINN 17. JÚNÍ 2002
LÍFIÐ
FYRIR INGU
TILGANGURINN
GRASAGARÐURINN Í KAUPMANNAHÖFN
ÞROSKINN
MAÐURINN Á HJÓLINU
NÚTÍMINN
TIL KONU
Unglingurinn
UPPALANDINN
RITAÐAR HUGSANIR
GUÐ ER TIL
FIMMGANGUR
SPURNINGAR
STYTTAN
ÞUNGLYNDI
GEGNSÝNI
LÍFIÐ, TÍMINN OG ALDURINN
PÓLITÍKUSINN
PRÓFIÐ
TÍMINN VIÐ UPPELDISSTÖRF
BLÓMIN Í GARÐINUM
DÆMALAUS
ÞAR SEM VEGUR FINNUR VOG
VORIÐ Í REYKJAVÍK
PASSA AÐ LJÓSMYNDIR
68
VIÐ
STJÓRNMÁLAMENN
LAUGAÐUR
ÓHEPPNA BARNIÐ
MANNLEGT EÐLI
JÓLALJÓS
Jólin 2004
JÓLIN 2005
LJÓÐRÆNAN Í MÉR
MAÐURINN
LANDSKEPPNIN
MERKIN MERKILEGU
HAMINGJAN
SKÓLASTJÓRINN
LÁTA AÐRA GUÐI Í FRIÐI
SUMARBLÓÐ