ÓHEPPNA BARNIÐ
Værirðu bara handleggsbrotið.

Elsku litla barn.

Já, bara að þú hefðir nú dottið
og það fossaði blóð.

Elsku litla barn.

Nú eða bara, að það stæði glerbrot
í hálsinum á þér.

Elsku litla barn.

Svo við tölum nú ekki um umferðarslys,
það væri lúxus.

Elsku litla barn.

Þá væri bíllinn með fallega rauða
krossinum kominn að sækja þig.

Af því að þú heldur að þú sért hundur
og geltir að fólki,

þá kemur enginn.

Elsku litla barn.
 
Ásgeir Beinteinsson
1953 - ...


Ljóð eftir Ásgeir Beinteinsson

NORÐURLJÓSIN
ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGURINN 17. JÚNÍ 2002
LÍFIÐ
FYRIR INGU
TILGANGURINN
GRASAGARÐURINN Í KAUPMANNAHÖFN
ÞROSKINN
MAÐURINN Á HJÓLINU
NÚTÍMINN
TIL KONU
Unglingurinn
UPPALANDINN
RITAÐAR HUGSANIR
GUÐ ER TIL
FIMMGANGUR
SPURNINGAR
STYTTAN
ÞUNGLYNDI
GEGNSÝNI
LÍFIÐ, TÍMINN OG ALDURINN
PÓLITÍKUSINN
PRÓFIÐ
TÍMINN VIÐ UPPELDISSTÖRF
BLÓMIN Í GARÐINUM
DÆMALAUS
ÞAR SEM VEGUR FINNUR VOG
VORIÐ Í REYKJAVÍK
PASSA AÐ LJÓSMYNDIR
68
VIÐ
STJÓRNMÁLAMENN
LAUGAÐUR
ÓHEPPNA BARNIÐ
MANNLEGT EÐLI
JÓLALJÓS
Jólin 2004
JÓLIN 2005
LJÓÐRÆNAN Í MÉR
MAÐURINN
LANDSKEPPNIN
MERKIN MERKILEGU
HAMINGJAN
SKÓLASTJÓRINN
LÁTA AÐRA GUÐI Í FRIÐI
SUMARBLÓÐ