Prinsessa í einn dag
rauður kjóll meik og gloss
glitrandi smóking í stíl
hönd í hönd við tjúttuðum sveitt
uns ég ældi jólaglögginu á bringu þér.

ó, hversu spennt ég var fyrir kvöldinu
eyddi vikulaunum í galadressið
sagði upp 3.mánaða folanum fyrir Svenna
grenjaði við barinn og tók 5 skot

maskarinn smeigði sig inn í kinnar mínar
hló og grét til skiptis
gaf honum ögrandi augu meðan ég reyndi við forstjórann
í von um að fara með honum heim óreglubundið innihaldlaust kynlíf.

sit bara upp í sófa og man ekki neitt
sötra malt, púsla atburðum gærdagsins í heilstæða mynd mér í hag.
bara nokkuð sátt við niðurstöðuna þrátt fyrir óbæranlegan sársauka í klofinu  
bo
2005 - ...


Ljóð eftir bo

í kjöltu mér
Fréttir 20.mars 2005
bíumbíum
Prinsessa í einn dag
Óður til kennara
Sveitasæla
Dauðadæmdur
Barn Borgarinnar
skilnaðarbörn
Bjóst ekki við að vinna
Hættu að sofa