Þú
Þú dvelur löngum í dýflissu minni
í drunganum þar sem ekkert er.
Þar sem nóttin ein er náðin
með nístingskulda sinn.
Þar sem rotnar eru þær rætur
sem ryðja sér þó leið.
Þar sem ekkert er en engist
og egnir mig um leið.
Þar sem tilveran er taktur
sem táldregur mig.
í drunganum þar sem ekkert er.
Þar sem nóttin ein er náðin
með nístingskulda sinn.
Þar sem rotnar eru þær rætur
sem ryðja sér þó leið.
Þar sem ekkert er en engist
og egnir mig um leið.
Þar sem tilveran er taktur
sem táldregur mig.
Birtist í ljóðabókinni Návígi 2003
Allur réttur áskilinn höfundi
Allur réttur áskilinn höfundi