laus(n)
allt sem ég gef þér
dettur á gólfið
því þú heldur
höndunum að þér

(eins gott að það sé óbrjótanlegt)

það hrannast
í kringum fætur þína
þú átt orðið erfitt með
að hreyfa þig

(innst inni vildi ég óska þess að þú værir handalaus)

þú gefur mér lítið
enda er ég
frjáls ferða minna

af hverju fer ég ekki bara?
ekki er ég fótalaus

hlýt að vera hauslaus


 
Fiðurflétta
1976 - ...


Ljóð eftir Fiðurfléttu

sögulok
það var þá
hjartans dans
afmælisgjöf
getnaðarmál
björgunarlauf
reykingamaðurinn og stúlkan hans
vinkona mín
Dagar og nætur
íslensk veðrátta
Askja Pandóru
Flugnalok
Fuglafólkið
Við ána
London Underground
upprifjun í baði
þögn
body paint
Sóleyjarhafið
æðarnar á enni þínu
manstu eftir stúlkunni
af kossinum skaltu þekkja manninn
Haustnótt
það var þá varð að
brún, græn, blá og svört lítil ellefa
september
til skáldsins
tilhugsun
aðeins eitt orð
ágúst
loforð
snjóengillinn
brennandi hugar
sænskt ævintýr
orðlaus
sætindi
vorið kom
sandstormur
sprengdu rauðuna
laus(n)
álfatan
reykjavík