álfatan
kötturinn sagði
\"það er ekkert vont,
bara svona\"

og sýndi mér mynd

mynd af gamallri
mjólkurfötu
úr áli

hún var tóm

einu sinni
lamdi ég kálfa í hausinn
svo allir fengju að drekka

þá var hún full

og ég samviskubitin
yfir að lemja
frekustu kálfana

einu sinni
var einn svo frekur
að fatan valt um koll

og kötturinn lap mjólkina

 
Fiðurflétta
1976 - ...


Ljóð eftir Fiðurfléttu

sögulok
það var þá
hjartans dans
afmælisgjöf
getnaðarmál
björgunarlauf
reykingamaðurinn og stúlkan hans
vinkona mín
Dagar og nætur
íslensk veðrátta
Askja Pandóru
Flugnalok
Fuglafólkið
Við ána
London Underground
upprifjun í baði
þögn
body paint
Sóleyjarhafið
æðarnar á enni þínu
manstu eftir stúlkunni
af kossinum skaltu þekkja manninn
Haustnótt
það var þá varð að
brún, græn, blá og svört lítil ellefa
september
til skáldsins
tilhugsun
aðeins eitt orð
ágúst
loforð
snjóengillinn
brennandi hugar
sænskt ævintýr
orðlaus
sætindi
vorið kom
sandstormur
sprengdu rauðuna
laus(n)
álfatan
reykjavík