Gyllt hjartalag
Þú segir mér að bíða,
á meðan þú áttar þig.
Þótt áttirnar séu bara fjórar.
Eins og hvernig þú ferð að því
að snúa út úr spurningum um lífið.
Þegar það eru einföld svör.
Þú gengur upp götuna,
áfram og lítur aldrei við.
En ég á að bíða, áttavillt.
Sé þig aftur og aftur
með þitt gyllta hjarta.
Þú átt mig, en ég vel átt.
Ég get ekki beðið.
á meðan þú áttar þig.
Þótt áttirnar séu bara fjórar.
Eins og hvernig þú ferð að því
að snúa út úr spurningum um lífið.
Þegar það eru einföld svör.
Þú gengur upp götuna,
áfram og lítur aldrei við.
En ég á að bíða, áttavillt.
Sé þig aftur og aftur
með þitt gyllta hjarta.
Þú átt mig, en ég vel átt.
Ég get ekki beðið.
05.12.05