Veruleiki
Klaki vekur þig að morgni
kuldi læðist upp bakið.
Frostið tekur á móti þér
og leikur við hörund nakið.
Hér er tilveran bláköld
og dagurinn sjálfur napur.
Kulið hjartað slær ekki
því veruleikinn er dapur.
Hvítar rósir brotna niður
með tárin frosin við kinn.
Fyrir utan ber sólin á hurð
en mun ekki komast inn.
kuldi læðist upp bakið.
Frostið tekur á móti þér
og leikur við hörund nakið.
Hér er tilveran bláköld
og dagurinn sjálfur napur.
Kulið hjartað slær ekki
því veruleikinn er dapur.
Hvítar rósir brotna niður
með tárin frosin við kinn.
Fyrir utan ber sólin á hurð
en mun ekki komast inn.