Örvænting
Allt í einu stór
og nýbúin að vera barn.
Hvað gerðist?
Hvert fór tíminn?
Hvar ertu tími?
Komdu aftur!
En þú fórst ekki, bara leiðst…
Fortíðin er týnd.
Var hún einhverntíman til?
Framtíðin er ekki til.
Hvar ertu framtíð?
Ekki koma samt svona fljótt!
Ég sé þig í fjarska
en nálgast alltof hratt…
Þú tími,
Þú óskiljanlegi tími!
Hvernig get ég skilið þig?
Hvernig get ég fylgt þér?
Leyfðu mér allavega
að fylgja þér
aðeins lengur…
og nýbúin að vera barn.
Hvað gerðist?
Hvert fór tíminn?
Hvar ertu tími?
Komdu aftur!
En þú fórst ekki, bara leiðst…
Fortíðin er týnd.
Var hún einhverntíman til?
Framtíðin er ekki til.
Hvar ertu framtíð?
Ekki koma samt svona fljótt!
Ég sé þig í fjarska
en nálgast alltof hratt…
Þú tími,
Þú óskiljanlegi tími!
Hvernig get ég skilið þig?
Hvernig get ég fylgt þér?
Leyfðu mér allavega
að fylgja þér
aðeins lengur…