úr sandkassa minninganna
horið góða grænt og hlýtt
laðar fram minningar bernskunnar
úr sandkassanum
þegar maður þurrkaði það með erminni
svo eftir sat rönd frá nösinni og niðr’ eftir kinn
þegar blautir vettlingarnir
hleyptu inn sandinum
sem þornaði á milli fingranna
þegar maður kom inn í hlýjuna
svo þurrkaði maður sandinn burt
og eftir sat önnur rönd
aðeins daufari
laðar fram minningar bernskunnar
úr sandkassanum
þegar maður þurrkaði það með erminni
svo eftir sat rönd frá nösinni og niðr’ eftir kinn
þegar blautir vettlingarnir
hleyptu inn sandinum
sem þornaði á milli fingranna
þegar maður kom inn í hlýjuna
svo þurrkaði maður sandinn burt
og eftir sat önnur rönd
aðeins daufari