Kremkex
Hún stoppaði stutta stund fyrir framan kexið
skoðaði lögun þess
virti fyrir sér skrautlegar pakkningarnar.

Stuttu síðar gekk hún heim á leið
með pakka af hvítu kremkexi
í gulum Bónuspoka.

Hún gat ekki annað en hlegið af eftirvæntingu
á meðan hún opnaði pakkann
ofurvarlega.

En áferðin var röng
og bragðið ekki eins og hana minnti.

Enda ætti enginn að borða kex
einn yfir eldhúsvaskinum.  
Auður
1983 - ...


Ljóð eftir Auði

Snjókoma
Kremkex
Vetur
And-vaka