Mál málanna
Ég tók til máls
um mál málanna
meðal málsmetandi manna
gerður var góður rómur
að máli mínu
enda er ég rómuð
fyrir að vera vel máli farin
og hafa viðkunnalegan málróm
kvisast hefur út orðrómur um það
að málið sé í höfn
enda er það málið
og er það mál manna
að ég hafi alfarið tekið málin
í mínar hendur
og með því leyst málið.
Sem er mjög gott mál.
um mál málanna
meðal málsmetandi manna
gerður var góður rómur
að máli mínu
enda er ég rómuð
fyrir að vera vel máli farin
og hafa viðkunnalegan málróm
kvisast hefur út orðrómur um það
að málið sé í höfn
enda er það málið
og er það mál manna
að ég hafi alfarið tekið málin
í mínar hendur
og með því leyst málið.
Sem er mjög gott mál.