vitaskuld
fékkst við barsmíðar
laghentur að sögn
keypti vita fyrir launin
tók lán
helminginn út
og afganginn á
fjörutíu árum
nú á ég hálfvita
og vitaskuld
tíu árar í fjöru
laghentur að sögn
keypti vita fyrir launin
tók lán
helminginn út
og afganginn á
fjörutíu árum
nú á ég hálfvita
og vitaskuld
tíu árar í fjöru