Hjarta tromp
Ástin grípur
utan um mig
og heldur mér fastri.

Samofin
örmum þínum
sem strjúka
hjarta mitt
og mjúkur kossinn kitlar.

Gömul ást
að kolum orðin.
En glóðin geymist
í hjarta mínu.

Þú tekur í hönd mína.
Ég brosi.

Lífið leikur við mann.

------

Leikurinn kláraðist.
Ég tapaði.

Með ástina
að trompi
-Ég gleymdi að spila henni út.

Nú sit ég uppi með hana
í hausnum.

Því þú tókst hana
úr hjartanu
þegar þú sagðir
\"Neistinn er kulnaður-\"  
Vala Yates
1983 - ...


Ljóð eftir Völu Yates

Weeping Willow
Flowers and Candy
I need your love
Their Heimar
Myrkhuginn
Traust
Plagued with Worries
Is love?
Tónafljóð
Söknuður
Someday
Soulless TV
Jólagleði
Think yourself crazy?
Chaotic Paranoia
Næturgalin
I am
The little things
The look that said
Think about me?
Sleepless Thoughts
Tárið talar
Splitting Heartache
Later
Seinna
Chaotic Paranoia II
Rússíbaninn
Rollercoaster
A lone tear
Þetta smáa
Forgetmenot
Goodbye
All/one (Blinded)
Heavy pains
Fangin?
Hugviltur
Draumveltur og vangaráðningar
Til minnis...
Hjarta tromp
Changes
Vonin í myrkrinu
Not here anymore