Tónlist
Snotrar nótur leika sér
Í garði nýrra heima
Ganga yfir tónstigann
Og tónlistina sauma

Fagrar nótur leika sér
Og strengi mína strjúka
Þegar lagið hljómar blítt
Fá áhyggjur að fjúka

Nótur mínar segja mér
Að slaka á og dreyma
Harmoníur hljóma nú
Og hjálpa mér að gleyma
 
Eva Rut
1987 - ...


Ljóð eftir Evu Rut

Næturvísa
Draumur 30. nóvember \'05
Way Out
The Last Session
Tilfinningafelarinn
Tónlist
Hafið
Dansinn