Að Sakna
Ég er vængstýfð kráka
Í margmenni siðmenningar.
Myrkur umvefur vængi mína,
Ég er ein

Ég hef villst frá mínu liði,
Í eirðarleysi sef.
Mitt hjarta er stórt en brestur þó.
Ég þarfnast míns hrafnaþings

Glötun bíður mín hvert sem ég fer
Höfuð mitt er milli steins og sleggju
Hvað get ég gert?
Koma tímar, koma ráð.
 
Stefanía
1989 - ...


Ljóð eftir Stefaníu

Hughreysting
Memories Remain
Black Fire
Share Eternity With Me
Að Sakna
Vonleysi
Græðgi