

Þú undurhlýja ágústnótt
ennþá það mig dreymir
þegar þú komst um kvöld
til mín
og kysstir mig í leyni.
þó liðin séu ár og öld
heil eilífð hér um bil
þeim kossi og hvarmaljósum tveim
gleymt kann ég ei né vil.
Því leiðir skildu
á lífsins braut
þín lá um hafsins strauma
en ég sat heima og bað og beið
í bríma fornra drauma.
ennþá það mig dreymir
þegar þú komst um kvöld
til mín
og kysstir mig í leyni.
þó liðin séu ár og öld
heil eilífð hér um bil
þeim kossi og hvarmaljósum tveim
gleymt kann ég ei né vil.
Því leiðir skildu
á lífsins braut
þín lá um hafsins strauma
en ég sat heima og bað og beið
í bríma fornra drauma.