Tregablendin ást
Ég reyni að hlaupa á undan henni
en þegar hún nær mér
þá vil ég verða samferða henni.
Ég reyni að berjast við hana
en þegar hún nær hálstaki á mér
þá leyfi ég henni að klára lotuna.
Ég reyni að fela mig fyrir henni
en þegar hún finnur mig
þá vil ég leika við hana.
Ég reyni að hata hana
en þegar hún læðist upp að mér
strýkur mig, og gælir við mig
þá vil ég elska hana.
Alltaf. Allstaðar.
Þangað til ég losa mig við hana. (og fer í merðferð.)
Fíknina.