Hallæri (Ég elska þig þegar ég þarf á þér að halda)
Þú ert fallegur
þegar ég þarf á því að halda.
Þú heillar mig
þegar ég þarf á því að halda.
Við elskumst innilega
þegar ég þarf á því að halda.
Við leiðumst um bæinn
þegar ég þarf á því að halda.
Þú huggar mig
þegar ég þarf á því að halda.
Ég veit hvað þú hugsar
þegar ég kæri mig um það.

Þú þarft ekki á mér að halda.  
Eyrún
1982 - ...


Ljóð eftir Eyrúnu

Ógn
Hallæri (Ég elska þig þegar ég þarf á þér að halda)
Morgunsár
Leyndardómur hamingjunnar
Fyrsta staka
Önnur staka
Þekki ég þig?
Við
Um sögur/sagnaleysi
Þú
Sprengja (11.sept.´01)
Modernir tímar
Konan í strætóskýlinu
Sigling
Með augun lokuð
Tálar málaðar
Dáin