Með augun lokuð
Ef ég ætti eina ósk
þá myndi ég óska þess
að allir í heiminum myndu loka augunum.
Bara eitt augnablik.
Þú líka.
Þá myndi ég ganga til þín
og kyssa þig kveðjukoss
og fara síðan.
Þig myndi ekkert gruna
og héldir bara áfram að lifa.
Án mín.  
Eyrún
1982 - ...


Ljóð eftir Eyrúnu

Ógn
Hallæri (Ég elska þig þegar ég þarf á þér að halda)
Morgunsár
Leyndardómur hamingjunnar
Fyrsta staka
Önnur staka
Þekki ég þig?
Við
Um sögur/sagnaleysi
Þú
Sprengja (11.sept.´01)
Modernir tímar
Konan í strætóskýlinu
Sigling
Með augun lokuð
Tálar málaðar
Dáin