Ég
Ég tel stjörnurnar í gegnum skýin
bjartari en í gær
nálægar, nær og nær
get ekki náð þeirri réttu

Ég finn hjörtun slá allt í kring
eitt, eitt og eitt
heyri ekki neitt
get ekki fundið það rétta

Ég loka augunum og horfi á mig hugsa
þarna inni svo skýr
málrómurinn hlýr
get ekki myndað það rétta
ÞP 2001
 
Þór
1975 - ...


Ljóð eftir Þór

Næturvakt
Ég
Mín
Liðið