Kraftur alheims
Hún kom í lif mitt
- og einskis var spurt.
Hún brýst í höfði
hvatir bælir - uns
sál og líkami getur ei meir.
Ástin er kraftur sem
engu eirir
en samt
leitum við hennar í sífellu
þrátt fyrir
eyðileggingamáttinnn
Hvort sem þú reynir að
hrekja hana burt
í göróttum ódáinsdrykkjum
eða í blekkingu sefa
í annari sál...
Þá er ástin aflið sem heiminn knýr
sem veldur gleði
sem veldur sársauka,
blekkingu, tálsýn...
sem er eyðilegging alls
þegar upp er staðið.