Í leit að sjálfstæði
þú ert sem bátur
er ætíð rekur frá,
eða á flóði - rekur að,
en í raun fylgir hvorki
flóði né fjöru
þú hefur ekkert akkeri,
engar landfestar,
engan áttavita, né vél
þú hefur engin segl,
og engin möstur
aðeins vindurinn
og almættið sjá um þig
þú ert sjálfstæðið -
sem ögrar öllum,
en þó mest sjálfum þér
bátur, bátur, komdu,
vertu kyrr,
bryggjan bíður þín.
er ætíð rekur frá,
eða á flóði - rekur að,
en í raun fylgir hvorki
flóði né fjöru
þú hefur ekkert akkeri,
engar landfestar,
engan áttavita, né vél
þú hefur engin segl,
og engin möstur
aðeins vindurinn
og almættið sjá um þig
þú ert sjálfstæðið -
sem ögrar öllum,
en þó mest sjálfum þér
bátur, bátur, komdu,
vertu kyrr,
bryggjan bíður þín.