Vetrarlitir
Fjallið stundi undan þunganum.
Það hrundi úr hamrinum
og í fallinu
gáfu björgin sér góðan tíma
hægt
féllu þau til botns
eins og lítil rauð fóstur
í legvatni
nýlátinnar móður
Það hrundi úr hamrinum
og í fallinu
gáfu björgin sér góðan tíma
hægt
féllu þau til botns
eins og lítil rauð fóstur
í legvatni
nýlátinnar móður