frostatíð
ísvetrardrottningin
kreppir kalt hjartað
utan um fortíð
sem hún ei vill
leysa úr læðingi
ískaldur sársaukinn
öll okkur nístir
þar sem við liggjum
í klakaböndum
og öndum alköldu
ísjökulábreiðan
rólega skríður
nær mér og hylur
vonir um þíðu
í sálu drottningar
ísilögð framtíðin
og stundin þessi
botnfrosin eilífð
til minningar um
of heitan ástareld
kreppir kalt hjartað
utan um fortíð
sem hún ei vill
leysa úr læðingi
ískaldur sársaukinn
öll okkur nístir
þar sem við liggjum
í klakaböndum
og öndum alköldu
ísjökulábreiðan
rólega skríður
nær mér og hylur
vonir um þíðu
í sálu drottningar
ísilögð framtíðin
og stundin þessi
botnfrosin eilífð
til minningar um
of heitan ástareld