España
Í september ég sagði þér
við sjáumst bráðum aftur.
Þú höndum föstum heldur mér
sem heljar innri kraftur.
Þó vetur gnauði, vinna og strit
þú vart úr huga líður.
Brátt ég leita á þitt vit
þú alltaf ert - og bíður.
Frá því að ég fyrst þig sá
fylltir þú mig krafti.
Ég vissi að þig yrði að fá,
minn anda sviptir hafti.
Ég ætíð hanska upp þinn tek,
aldrei örlar kala.
Gef ég þér minn hug og þrek
og þínu máli tala.
Hver snerting við þig sólu gefur
skín þitt heita hjarta.
Spor í líf mitt sett þú hefur
Spánn, þú land mitt bjarta.
við sjáumst bráðum aftur.
Þú höndum föstum heldur mér
sem heljar innri kraftur.
Þó vetur gnauði, vinna og strit
þú vart úr huga líður.
Brátt ég leita á þitt vit
þú alltaf ert - og bíður.
Frá því að ég fyrst þig sá
fylltir þú mig krafti.
Ég vissi að þig yrði að fá,
minn anda sviptir hafti.
Ég ætíð hanska upp þinn tek,
aldrei örlar kala.
Gef ég þér minn hug og þrek
og þínu máli tala.
Hver snerting við þig sólu gefur
skín þitt heita hjarta.
Spor í líf mitt sett þú hefur
Spánn, þú land mitt bjarta.