Lítið vögguljóð
Sofðu litla mær,
sofðu vina rótt
þig dreymir svo fallegt í nótt.
Svíf þú í svefn,
lokast augun hljótt
yfir fer myrkrið nú fljótt.
Dreymi þig vel,
hjá þér ég dvel
uns sóttheitum svefninum lýkur.
Þú sefur um sinn,
nú sjóðheita kinn
hljóðlega aftur ég strýk…
Svíf þú í svefn,
lokast augun hljótt.
ég kyssi þig góða nótt
Sofðu nú vært,
barnið mitt kært
hin höfga nótt þig tekur
Þú sefur sátt,
en svo kemur brátt
í líf þitt, enn einn dagur nýr....
sofðu vina rótt
þig dreymir svo fallegt í nótt.
Svíf þú í svefn,
lokast augun hljótt
yfir fer myrkrið nú fljótt.
Dreymi þig vel,
hjá þér ég dvel
uns sóttheitum svefninum lýkur.
Þú sefur um sinn,
nú sjóðheita kinn
hljóðlega aftur ég strýk…
Svíf þú í svefn,
lokast augun hljótt.
ég kyssi þig góða nótt
Sofðu nú vært,
barnið mitt kært
hin höfga nótt þig tekur
Þú sefur sátt,
en svo kemur brátt
í líf þitt, enn einn dagur nýr....