Lýgur hann??
Sú staðreynd að risaeðlur ríktu hér á jörðu fyrir 65 milljónum ára er eitt út af fyrir sig næg sönnun þess að Guð sé ekki til og hafi þess vegna ekki getað skapað þær enda er hvergi minnst á sköpun Guðs á risaeðlum í Biblíunni.
Og jafnvel þó við trúum því að Drottinn hafi ekki getað skapað risaeðlurnar sökum þess að hann sjálfur var ekki kominn fram á sjónarsviðið þegar þær voru uppi, þá er það þó að minnsta kosti ljóst samkvæmt því að sé Guð til að þá lýgur hann alla vega þegar hann segir í Bibíunni að hann hafi alltaf verið
til, þar sem hann var ekki orðinn til þegar risaeðlurnar urðu til.
Með þessari skreytni sinni brýtur Almættið því eitt af sínum grundvallar boðorðum sem hljóðar svo;
'Þú skalt ekki ljúga'
En hver skapaði þá risaeðlurnar?
Augljóslega einhver annar guð!
Þannig að Drottinn allsherjar hefur þá ýkt ansi skrautlega líka þegar hann hélt því fram að hann einn væri Guð og að við skyldum ekki aðra guði hafa.
Þess vegna segi ég alltaf hreint út við Guð, þegar hann er að reyna að telja mér trú um að hann sé til að hann sé einfaldlega að ljúga því eins og ævinlega.