Martröð
Skýin hrannast upp
eftir að ský
tók að draga fyrir sólu
sem skein.

Allt sem var svo bjart
virðist nú svo dimmt,
svo þungt
og hún sekkur

dýpra og dýpra
uns henni finnst hún vera að kafna
hún fellur
Heldur að hún geti ekki meir.

Þar til hún vaknar
af hræðilegri martröð.  
Þorgerður Jóhanna Sveinbjarnardó
1989 - ...
Bókstaflega vaknaði af hræðilegri martröð. Samdi þetta í kjölfarið.


Ljóð eftir Þorgerði Jóhönnu Sveinbjarnardóttur

Ástand
Mynd af kyrrð
Martröð
Sambandsleysi
Hamingja