Dagbók sársaukans
Í morgun opnaði ég augun,
hann var ekki hjá mér.
Í hádeginu borðaði ég ekkert,
því hann borðar ekki með mér lengur.
Í þrjúkaffinu starði ég á símann,
hann hringdi ekki,
Í kvöldmatnum grét ég,
því ég saknaði hans.
Allt kvöldið starði ég á tölvuskjáinn,
hann svaraði mér ekki.
Í nótt lagðist ég í rúmið,
og lá andvaka á meðan stingandi minningar ásóttu mig.
hann var ekki hjá mér.
Í hádeginu borðaði ég ekkert,
því hann borðar ekki með mér lengur.
Í þrjúkaffinu starði ég á símann,
hann hringdi ekki,
Í kvöldmatnum grét ég,
því ég saknaði hans.
Allt kvöldið starði ég á tölvuskjáinn,
hann svaraði mér ekki.
Í nótt lagðist ég í rúmið,
og lá andvaka á meðan stingandi minningar ásóttu mig.
GÞÞ